Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

þriðjudagur, september 25, 2007

Mi Casa.............

ok kæru lesendur, á föstudaginn seldi ég íbúðina mína og keypti hús (http://mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=262425) og hefst þá samningarviðræður við bankann um hversu ógó efnuð ég sé (er það kannski ekki núna, en samt þó alveg nóg, en verð það á næstu 24 mánuðum vitið þið til :) ) Lífið er fullt af tækifærum sem gerast bara ef maður trúir og er tilbúin til að taka þeim :) neikvæðir hlutir gerast fyrir fólk sem er neikvætt og meðan maður trúir því þá getur maður öðlast jákvæða reynslu,þekkingu,tækifæri út úr öllu sem maður lendir í. Þetta er það sem ég trúi eða "the power with in" er eitthvað sem við öll höfum en kæfum það niður með efasemdum, neikvæðni og rugli í okkur sjálfum. En ég er ekki ein af þeim (ok ég er kannski ekki eins og vistmaður Sólheima alla daga) nær alla daga þar sem ég lít á að jákvæðni mín skili mér og þeim sem mig umgangast betra umhverfi,vellíðan og lífi......en nóg um það.............

pælingar!!!!

ég fór með skvísurnar í vinnunni og í SÍH á djamm (sitthvor vikan) og dröslaði ég þeim upp í Heilsuakademíu þar sem við fengum kennslu í Pole fimi og Strip tease........eftir að hafa verið með tvo kennara að sína sér hvernig maður athafnar sig við þessa iðju þá komst ég að því að mér til mikillar skelfingar þá er ég langt frá því að vera vottur að kynþokka nálægt stöng og stól. Ég meinaða kannski vantaði bara áfengið í stripið (þá meina ég sér í lagi hjá "fórnarlambinu) til þess að geta "púllað þetta off". Ég sem hef oftar en ekki verið merkilega sannfærð um eigið ágæti og getu rann flatt á hausinn þegar kom að því að vera dead sexy og dansa getnaðarlega um/á/við/undir stól....þannig að ef Níels og allir hinir mennirnir mínir á eyjunni lesið þetta þá efast ég um að þið þurfið einhvern tíman að upplifa það að sjá mig dilla bossanum mínum (sem þó er flottur bossi.....einhverstaðar í heiminum) framan í ykkur eins og fullu tungli í heimsenda......... já því miður get ég ekki aflað peninga svona og hef því ákveðið að snúa mér beint að vændinu!!!!! nánari útfærsla á því síðar

annars nóg um það krúttin mín
næsta blogg verður svo um framkvæmdir í nýja húsinu MÍNU......

Flugfélagið Ing-Air vill þakka ykkur áheyrnina og vonar að þið hafið notið þess að fljúga með okkar og bjóðum ykkur velkomin um borð aftur.

föstudagur, september 21, 2007

Dirty bitch.....

lélegasti bloggari norðan fucking alpa er enginn annar en tölvunördinn Inger, viðurkenni það fúslega.........en nóg um það hef frá nógu að segja númer 1 er ég orðin löglegt gamalmenni og komst á fertugsaldurinn þriðjudaginn seinasta, þann merka dag 18.september 2007 en enginn skal þó örvænta því að þetta er bara byrjunin á ævi stórmennis (það er ég að sjálfsögðu) ég get t.d. huggað mig við það að ég er ekki búin að peak-a á toppi kynhvatar minna (skilst að það gerist í kingum 35...) ég verð eflaust meira sexy 31 heldur en ég var 21 og eflaust meira sannfærð um eigið ágæti líka(if possible)..... já það þarf sko sterk bein til að vera ég (enda svo mikið af "vöðva" að bera núna á fertugsaldrinum....

annars er fullt að gerast, ég er búin að fá tilboð í íbúðina mína, gerði gagntilboð í morgun og bauð í hús í leiðinni (sem maðurinn minn hefur ekki einu sinni séð) og vona að báðir samningar gangi bara í gegn.... en þarf þá eftlaust að flytja eitthvað í millitíðinni og Anný ef þú lest þetta þá lofa ég að elda heitan mat á hverjum degi ef við flytjum inn til þín (sem er meira en Sigga systir ræður við .....múhaa núna get ég og Sigga farið í keppni um hylli Annýjar og hvor fær að búa hjá henni, annars ef þú lest þetta Sigga mín þá get ég þú og NCC náltla bara kúrað saman í rúminu ;).....

svo er ég komin með B-réttindi í skotvopnum sem þýðir að ég má eiga byssuna mína og leita hér með eftir heppilegu gæsatúni fyrir myndalegan gæsahóp (aka Konur í skotveiði) á suðausturlandi....áhugasamir sendið póst á ingerericson@hotmail.com eða hafið samband via mobile ;)

Annars er skemmtilegt frá því að segja að CC vinkona kom til mín í fyrradag og sagði mér frá því að hún hafði verið að lesa grein um Swingers kúbba á Íslandi og upp hófst skemmtilegar umræður um málefnið hjá okkur.....og hlóum við eins og vindurinn þegar við sáum árshátíðarnar hjá þessum klúbb fyrir okkur og vorum alveg að spá í það hvort við gætum ekki unnið á barnum og svona hjá félagsskapnum. Nei svona í alvöru hvernig fer þetta fram, mætir fólk bara í fína spússinu sínu, hengir upp kápurnar, spjallar við félagana, fær sér reddara á barnum,borðar góðan mat,kaffi og koníak...og obobob jæja krakkar núna setjum við bara fötin hjá kápunum og skellum okkur á "dansgólfið" sem er þá kynsvall í stað eðlilegs bömbs í lélegu dansspori!!!!!! skemmtilegar pælingar og verð að viðurkenna að ég átta mig ekki á því hvernig svona virkar en er alls ekki að fordæma einn eða neinn fyrir að stunda þetta (segi bara more power to them.....) bara svo skemmtilegt að pæla í þessu sér í lagi á síðustu og verstu dögum æskunnar ;)

síðast en ekki síst óska ég eftir ríkum,myndalegum,getnaðarlegum karlmanni (helst í einkennisbúning) fyrir ónefnda vinkonu mína (er í keppni um hylli hennar)

góða flöskuhelgi ;)