Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

miðvikudagur, maí 12, 2004

Vá maður lenti í svakalegu í morgun!!!!
Ég var að keyra í morgun á Dalv, allt í einu sé ég blá ljós fyrir aftan mig!!!! þekki þau, hef séð þau nokkrum sinnum áður, og alltaf þegar ég er að flýta mér (a.k.a. keyra of hratt).......en núna ákvað ég að gera eitthvað í þessu sífelda áreiti löggunnar... aldrei þessu vanta var löggan ein í bílnum (skil ekki hvernig þeim dettur í hug að stoppa mig án þess að vera með vitni, en til þess að vera alveg viss um að fá ekki sekt gerðist eftirfarandi).Löggan steig út úr bílnum og byrjaði að spyrja mig um ökuskirteinið
Me= Því miður ég get ekki látið þig hafa það, hef ekki ökuréttindi, missti þau fyrir tveimur mánuðum vegna ölvunaraksturs!
L= Bíddu, vina! og átt þú þennan bíl???
ME= Nei, ég stal honum!!!!!
L= Stalstu bílnum!!!! (frekar leiðinlegt svipmót sem ég fékk þarna...svo ekki sé minnst á tóninn)
ME= Jebb, og myrti eigandann. (með sakleysisbros á vör) skar hann í búta og henti honum í skottið.
Löggan steig frá bílnum og sagði "hinkraðu aðeins...." og ég sagði náttúrulega bara "ekkert mál"
Sá að hann hringdi úr gsm-símanum sínum og mjög stuttu seinna (kom mér eiginlega á óvart hversu fljótt) komu 2 löggubílar með sírenunum.
Út úr þeim komu fjórar löggur og löbbuði í áttina að bílnum.... einn þeirra sagði við mig
L2= Fyrirgefðu vinana ertu til í að stíga út úr bílnum og tala aðeins við mig!!
me= fyrirgefðu en er eitthvað að? (spyr ég voða áhyggjufull og virðist ekki skilja upp né niður í neinu)
L2= Félagi minn segir að þú hafir stolið þessum bíl og myrt eiganda hans!!!!
Me= what???? hvað ertu að segja maður, ég skil ekkert hvað er að gerast hérna (alveg svoleiðis með sólheimaglottið framan í mér af undrun...og ósýnileg púkahorn á hausnum)
L2= Ertu til í að opna skottið fyrir mig?
ég náttúrulega vippaði bara lyklinum í skottið og poppaði því upp, og að sjálfsögðu var ekkert í skottinu nema sprungið dekk og pampers pakki. Löggan stóð þarna algjörlega týnd og spurði mig svo hvort ég ætti bílinn, og ég svaraði því játandi og stökk í hanskahólfið og sótti skráningarskirteinið. Þá spurði Löggan mig hvort ég hefði ökuskriteini og ég náttúrulega dró upp skirteinið og hann starði á það af forundrun og hristi hausinn...sagði svo
L2= bíddu félagi minn sagði að þú hefðir misst prófið fyrir 2 mánuðum síðan fyrir ölvunaakstur???????
Me= bíddu ertu að djóka í mér!!!!! helvítis lygarinn hefur örugglega sagt að ég væri að keyra of hratt líka!!!!!!!!!!!!!!!!!!

kv I

fimmtudagur, maí 06, 2004

Tók svona gyðjupróf...báðir þessir gluggar poppuðu upp......veit ekki hvort ég er...hvað mynduð þið halda.......

ATHENA

Aþena var hin gríska gyðja þekkingar, lista, réttlætis, hæfileika, stríðs og iðnaðar hverskonar. Hún var hrein mey en þótti samt sem áður hálfgerður kvenhatari. Þrátt fyrir þetta reyndist hún því fólki vel sem henni líkaði við. Það hafa svo sem allir sínar veiku hliðar.

Því ert þú líklega persóna sem hefur góða nærveru og fólki þykir þægilegt að hafa nærri sér



eða

HERA

Hera var drottning guðanna, gyðja hjónabands og fæðinga. Hún var afar afbrýðisöm og má gera ráð fyrir að það hafi stafað af villtu lífi manns hennar Zeusar sem jafnframt var bróðir hennar, og lagðis með nánast öllu sem hreifðist. Hera var miskunarlaus í garð kviðkvenna/gyðja sinna og hefndi sín á þeim og börnum þeirra grimmilega.

Hera þótti fylgjast vel með öllu sem á gekk í henni veröld og þótti jarðbundin. Kannski er það það eina sem er virkilega líkt með ykkur... og alla vega vonandi.



kveðja I

miðvikudagur, maí 05, 2004

Stór orð.....litlil framkvæmd!!!!!!!!!!!

Ég er sæmilega pirruð núna, finn það mjög greinilega. Jæja eins og ég sagði á föstudaginn ætlaði ég að fara djamma, þakkaði guði að ég hætti við það þegar ég vaknaði á föstudagsnóttina með upp og niður veikina.....ætla nú svo sem ekki að fara út í neinar nánari lýsingar á því nema það að ég var fárveik fram á sunnudag!!!!!! focking frábær helgi það..... þessi er nú mikið betri eða..... NEI vinna allan föstudaginn, eftir vinnu fer ég héðan niður í höll og er þar til átta. Á laugardaginn, fer ég svo í afmæli og hvað svo ...... VINNA til átta, nei obobob....svo kemur sunnudagurinn, nei þá fæ ég ekkert helgarfrí.... því ég þarf að sjálfsögðu að VINNA, vá hvað ég nenni því ekki og sér í lagi ekki í ljósi þess hversu ógeðslega leiðinleg síðasta helgi var. Mér finnst ég engan veginn fá nógu góð laun fyrir alla þessa vinnu sem ég legg á mig. og ekki nóg með að ég sé að fara vinna, því Helena greyið er líka pínd til vinnu (og eiginlega Lotta líka því að hún er að passa fyrir mig :) ). Mig langar bara að fara í frí núna..................ÉG ÆTLA SAMT AÐ DJAMMA 15.......... NO MATTER WHAT