Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

fimmtudagur, október 18, 2007

Las Vegas baby.....

jæja krútt, allt að gerast núna :). Ég er búin að selja íbúðina mína, elskulegur eiginmaður minn fór í afsal í gær og þar var hann látinn greiða sölulaun fyrir að selja íbúðina okkar og fyrir það eitt er ég komin í stríð við fasteignasala!!!! ég meina það þetta eru mestu slísi viðskiptahættir fyrir en að rukka mann um viðskipti sem ekki eru búin er fyrir neðan allar hellur, ég skal alveg borga hluta en ég klára ekki að borga fyrir en ég er búin að fá þá þjónustu sem ég er að kaupa og henni er ekki lokið fyrr en ég búin að fara í afsal OG HANA NÚ!!!! er að bíða eftir símtali frá félagi fasteignasala.......málinu er ekki LOKIÐ

Annars sit ég hérna í vinnunni í ógeðslegasta cheerleader búning ever með viggu á hausnum þar sem það er las vegas vika í vinnunni og ég er að peppa alla upp í að koma í búning á morgun.....þá toppa ég allt!!!! í fyrramálið ætla ég að mæta í einhverju hórudressi, með brjóst fyrir allan peninginn, máluð með meiru og tek svona 4x meira brúnkukremssesion á eftir heldur en eðlilegt þykir. Haldið þið ekki að ég verði ekki smart, algjör bomba!!!!!!! hvað gerir maður ekki fyrir góðan móral og sigur í keppni!!!! ok hugsa að Lára kokkur eigi séns í að vinna mig en það er bara fyrir mína hjálp (meira um það seinna). Mér til mikillar skelfingar áttaði mig á því að ég á enga síður að fara í kaupsamning á morgun og verð ekkert smá ógó smart.

annars er brjálað að gera, kemst ekkert í það að kaupa neitt fyrir húsið og er að fara út eftir 15 daga :).....vá hvað dagarnir líða hratt

set inn mynd á morgun :)

luv you

fimmtudagur, október 04, 2007

Helgi fyrir austan......

Hvað er hægt að segja þegar maður tekur upprifjunarhelgi fyrir austan annað en "það sem gerist fyrir austan, verður eftir fyrir austan........" ahahaha nei svona að öllu gríni slepptu þá var alveg frábært að hitta þessa geðsjúklinga aftur, verð bara að segja að ég sakna þessara rugludalla allra og einstaklega gaman að fa update á þeim. Lofaði t.d. Pála því að ég myndi koma í kaffi í nýja kotið þegar hann væri fluttur inn og ef þú lest þetta dúllan mín þá verð ég að segja þér að það eina sem ég hef og mun drekka á Akureyri er áfengi (og mikið af því......) þannig að ef og þegar það er í boði þá mæti ég ;).....

annars er það að frétta að ég virðist vera að ná samningum við Kaupþing banka um viðskipti á nýja heimili Dalselspakksins og verð ég þá ekki lengur Dalselspakk heldur Brekkupakk eða Hillbilly eins og ég kýs að kalla okkar hér með.....en málið er kannski ekki svo einfalt því nú þurfa allir vinir minir (guð blessi ykkur) hvort sem það er fólk sem hefur tekið að sér það hlutverk að vernda umhverfið fyrir mér af góðmennsku (vinir) eða skyldurækni (ættingjar) þá verða þau á penslinum næstu vikurnar að aðstoð okkur hjónin í framkvæmdum....

annars þarf ég núna að vinna nóg í bili

rock on people :) luv Geri