Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

miðvikudagur, nóvember 15, 2006

Draumar.........

Ef ég spái í það að Fraud sagði hér um árið að draumar manns táknuði innri langanir okkar, þá er ég mjög fucked upp manneskja því draumar mínir eru mjög spes svo vægt sé til orða tekið. Í nótt dreymdi mig sem sagt voðalega krúttilegt ástarævintýri með stórvini mínum honum Óla smæl. Ég vaknaði og mér leið bara rosalega vel, var með svona fiðring í maga eins og ég væri voðalega skotin enda búin að vera dreyma eitthvað slíkt alla nóttina. Ég hins vegar sé ekki ástæðu til þess vera að hafa eitthvað samviskubit yfir þessu enda þegar ég er komin til fullrar meðvitundar þá er ekkert sem segir það að mig langi að hætta með manninum mínum, eiga í ástríðufullu ástarsambandi með Óla Erni og lifa hamingjusöm alla ævi!!!! Svo langt frá því :)
Ég hins vegar hef spáð í þessu með undirmeðvitundina og drauma og ég er svo sem sammála því að undirmeðvitundin vinnur þónokkuð starf í draumaveröldinni en þó ekki þannig að hún endurspegli okkar innstu þrá. Ef ég til dæmis greini niður af hverju mig dreymir Óla minn af öllum mönnum (sem nota bene ég sá seinast fyrir 4 árum síðan að ég held og hann býr í Danmörku með sinni konu og barni og við erum ekki í neinu sambandi) þá á hann alltaf ákveðin stað í mínu hjarta enda var ég "skotin" í honum frá 6 ára aldri og alveg þangað til í 9.bekk. Hann er einhver fígúra æskuásta, drauma og þráar og býr því í undirmeðvitundi sem slíkur. Því held ég að auðvelt sé að sækja slíkar næturpælingar án þess að þær eigi einhverjar rætur við raunverulegar pælingar mínar.............. þetta er allavegana mínar pælingar en það gæti kannski verið vegna þess að ef að draumar tákna innri þrár þá vil ég vera einhverskonar kvennútgáfa af James Bond! það er ég er guðsgjöf til karlmanna og vef þeim um fingur mér eins og ekkert sé, sef hjá þeim öllum (það er sem ég vil að sjálfsögðu) leysi heimsins vanda án þess svo mikið að brjóta nögl eða hæl á gelludressinu mínu!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

já draumar eru merkilegt fyrirbæri

that´s all folks

Ing-air

1 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim