Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

mánudagur, október 23, 2006

Stálminni.......................

Hæ elskurnar! ég sit hérna og er að pæla í því hvort allir séu jafn brussulegir í umheiminum eins og ég eða hvort ég sé bara "one of a kind"..... pæling mín á svo sem alveg fullan rétt á sér því á sama tíma og fólk veigrar sér við daga eins og föstudaginn 13 þá er það eitthvað sem ég tek bara eins og öllum hinum dögunum , enda álíka miklar líkur á óhappi hjá mér alla þessa daga..... ég meina þið eruð að tala við manneskju sem slasar sig sofandi...... (það er önnur saga....). Pæling dagsins er hins vegar hvort fólk lendi í álíka klaufalegum aðstæðum eins og ég virðist svo auðveldlega geta komið mér í???? spurning
Þekki þið það ekki þegar þið sjáið einhvern sem þið eruð alveg viss um að þið þekkið en "samt ekki". Í mínu tilviki hefst alltaf sama ferlið enda er ég ekki ein af þeim sem bara þykist ekki taka eftir fólki af því að ég er ekki viss um hvort ég ætti að heilsa viðkomandi eða ekki, ég sem sagt horfi í augun á viðkomandi og reyni að lesa út hvort þetta sé bara svona nikk kveðja eða hvort það er þörf á "hæ, hvað er að frétta af þér og þínum og so on dæmi" þetta hefur oftast gengið ofboðslega vel en í eitt skipti floppaði það alveg......
Ég var sem sagt í smáralindi "minding my own business" þegar ég sé mann sem ég kannst svona agalega við....fer í gegnum listann í hausnum "frændi,vinur,fyrrum hjásvæfa og so on" og ekkert hitt að koma fram í leit minni. Á sama tíma tek ég viðkunnalega nikkið og eitthvað sagði mér að ég ætti að þekkja hann betur en svo þannig að ég stoppa og tek manninn (sem var myndalegur og góðlegur maður) á tal. Ég var á þeim tímapunkti ekki búin að fatta hver í fuckinu þetta væri (það gerist nú reyndar oft....) og þá koma svona halló komment eins og "blessaður félagi, hvað er að frétta?" og "og hvað, er ekki allt gott að frétta af fólkinu????" (opnar spurningar sem halda möguleikum mínum ansi opnum hvað varðar svör og mótspurnigar) þessi elska var mjög kammó og spurði álíka hallærislegar spurningar og svona þegar við erum búin að skiptast á þessum kammólegheitum þá rennur upp fyrir mér hver í andskotanum þetta er!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! það var ekki plesant uppgötvun. Þessi annars kómó myndalegi maður var nefnilega ekki einhver sem ég þekkti og hafði ástæðu til þess að spyrja um hans hagi og einu tengsl mín við hann voru þau sömu og u.þ.b. 250þ annara íslendingar því að þessi ágæti maður var fréttamaður á stöð 2 og hef ég aldrei séð eða talað við þennan mann fyrr. Gvöð hvað þetta var ömulega halló og í stað þess að koma upp um mig með þessa uppgötvun þá ákvað ég bara að bæta gráu ofan á svart og klappa honum á öxlina og segja "jæja, verða að rjúka!!! þú bara skilar æðislega góðri kveðju á línuna"................ geri ráð fyrir því að kveðjan hafi hljómað eitthvað á þessa leið...

"mamma, það var stórskrítin stelpa, ótrúlega sæt,mjó og eflaust frábærlega skemmtileg (ahaha nota tækifærið) sem að bað að heilsa ykkur...... hef reyndar aldrei séð hana áður en hún bað samt að heilsa"

that´s all folks

1 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim