Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

fimmtudagur, mars 01, 2007

Klám......

verð aðeins að fá að tjá mig um Snow dæmið og hneykslun mína á Íslendingum varðandi þetta mál, com the fuck on fólk erum við í alvörunni orðin svona æðisleg þjóð að við neyðum hótel til þess að vísa fólki frá vegna þess að það vinnur við klámiðnaðinn. Hneykslun mín varð mun meiri þegar hótel Saga tók sig til og neitaði þessum hópi gistingu, ég vona svo sannarlega að þessi Snow hópur leiti réttar síns og fari með þetta mál alla leið í réttakerfum hérlendis sem og erlendis, þvílíkt mannréttindarbrot sem á sér stað hérna. Ekki nóg með það ég sá dagskránna hjá þessu ágæta fólki og ég gat ekki betur séð en að þau hafi ætlað að njóta Íslands eins og hver annar túristi sem mætir hérna í North Face úlpunni sinni og scarpa gönguskónum, já dagskráin var ferð í bláa Lónið, Gullni hringurinn og so on, en nei að sjálfsögðu var það bara yfirskin því að þessi hópur var að sjálfsögðu komin hérna til þess að tæla okkar fallegu konur í klámið, drekkja okkur í eiturlyfjum og halda hóporgíu á miklatúni!!!!!!! í alvöru, svo var einhver skinka sem er mjög mótfallin þessu "klámpakki" að skrifa grein um hversu ánægður hann væri og talandi um að engin vilji vinna við slíka iðju heldur er þvingaður eða í nauð sinni álpast út í slíka iðju. Það persónulega held ég ekki, ég meina að sjálfsögðu eru tilvik þar sem það á við en án þess að verja klámiðnaðin sem slíkan þá t.d. get ég alveg bondað með fólki sem vill frekar vinna við klám en eitthvað annað......ég hef t.d. oftar en ekki sagt að ég myndi frekar fara í vændi heldur en að vera dagmamma!!!!!!!!!!!!!!!!! Dagmæður eiga nefnilega alla mína aðdáun og virðingu skilið fyrir að geta stundað þessa vinnu en ég er sannfærð um að geðheilsu minni og minna yrði mun betur farið færi ég í vændi heldur en dagmömmujobið......ég meina það. Þannig vil ég meina að sumir hreinlega hafa bara gaman af þessu og aðrir hafa gaman af því að horfa á "heilbrigt" klám, aðrir teprast og dæma eitthvað sem þeir þekkja ekki og skrifa svo greinar þess eðlis hversu æðislegt það er að við heilsteyptu púritanarnir skildum hafa náð svo langt að flæma þennan óbjóð frá okkur!!!! fólk er svo hrætt við "klámmenninguna" sem á að vera að tröllríða landanum að það gleymir að við erum ennþá fullfær til þess að átta okkur á muninum á réttu og röngu og þótt að einhver tannstönguls pía viljir láta 4 kalla taka sig í öll op fyrir framan myndavél og gefa herlegheitin út þá get ég ennþá áttað mig á þvi hvað telst eðlilegt í kynlífi og hvað ekki og það sem meira er ég held líka að ég geti kennt börnunum mínum það.


æi nóg af tuði......verð að segja ykkur frá æðislegu a la Inger momenti!!!
Brunaði niður í bæ í vikunni með tannlæknareikningin hennar Lottu minnar, borgaði í stöðumæli og alles og hentist inní Tryggingarstofnun Ríkisins og nýtti mér þeirra yndislega hraðþjónustu. Dúndraði reikningnum í umslag, skrifaði bankaupplýsingarnar fram á, skutlaði þessu í póstkassa og út!!!! in/out project á 3 mínútum........easy písí. Fékk svo bréf sent frá TSR í gær þar sem reikningurinn er endursendur og á hann er búið að hefta kort sem stendur á "með kveðjur, tryggingarstofnun Ríkisins" (í alvöru, Takk TSR) og á því stendur "einungis ellilífeyrisþegar fá endurgreidda tannlæknareikninga"..........................bíddu ég var ekki að fatta, lyfti upp kortinu og sá að skinkan ég hafði að sjálfsögðu farið með minn reikning en ekki Lottu litlu!!!!!! hló mig máttlausa og hugsaði með mér "bíddu ég er nú að verða 30 ára á árinu, telst það ekki ELLIeitthvað a.m.k" ............ég verð víst að bíða nokkur ár í viðbót til þess að falla í þann flokk en held samt titlinum sem "LÚÐI".......en djöfull er ég samt sætur lúði!!!!!!!

thats all folks
I

3 Ummæli:

  • Þann fimmtudagur, mars 01, 2007 , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Æi, sæt. Það þarf náttúrulega að fara að ráða til þín aðstoðarmanneskju til að hafa eftirlit með þér. Það er t.d. svona starf sem yrði aðdáunarvert og alls ekki fyrir alla.

     
  • Þann föstudagur, mars 02, 2007 , Blogger Great mama sagði...

    Alveg óborganlegt með tannlæknareikninginn. Þetta er svo ekta þú. Bara skondið.

    En sammála klámdótinu - þetta nær ekki neinni átt.

    Mamma

     
  • Þann föstudagur, mars 02, 2007 , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Helena... Það er löngu búið að ráða svona aðstoðarmanneskju fyrir greyið, en þar sem TR styrkir ekki sólahringsvakt, þá verður hún bara stundum að reyna að bjarga sér sjálf... Níels getur ekki passað hana alltaf;)

     

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim