Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

fimmtudagur, apríl 15, 2004

obobob!!!!!!!!

Jæja þá er mín ofissíalí að deyja úr andleysi!!!! ég er ógó þreytt og mig svimar óstjórnlega og ég held að vöðvar inní mér séu að reyna að losa mig við einhver óþörf líffæri með stanslausum krampaköstum "svona um mig miðja"!!!!!! Er að reyna að vinna á tölvuna (með litlum árangri og því sit ég og reyni þá að minnsta kosti að blogga for my beloved fans out there...where ever you are(ecco, ecco)!!!!!!!!! hef eflaust ekkert merkilegt að segja í dag en var einmitt að velta því fyrir mér af hverju í andskotanum fólk er að pína svona frábæra manneskju eins og mig til þess að mæta í vinnu dag eftir dag!!!! mér persónulega finnst að einhver góður sponser eigi bara að halda mér vel uppi (a.k.a. gefa mér fullt af peningum) til þess að mæta á vinnustaði eftir hentuglegheitum, kynnast liðinu og úsa frá mér skemmtileg heitum. Starfsheiti mitt verður því "persónulegur mojo-ari". Ég er að hugsa um að stofna nýja stétt sem sinnir þessu af miklum krafti þegar andinn liggur yfir mér. Ég er viss um að fyrir nógu mikla peninga get ég verið skemmtileg á mismunandi vinnustöðum landans og úsað yfir starfsmennina skemmtilegum mánudagsfróðleiksmolum og bústað upp sjáfstraust hér og þar... t.d. "Alli, vissir þú það að lengdinn frá olboga og úlnið er nákvæmlega sú sama og lengdinn á fætinum á þér!!!!!! skemmtileg staðreynd, hahahaha" eða "Gvöð, Gunna, djöfull ertu búin að grennast síðan á föstudaginn, þú lítur ekkert smá vel út þegar þú situr við tölvuna og massar frávikagreininguna svona grindhoruð!!!!! " já dúllurnar mínar, þetta get ég allt saman gert án þess að blikna fyrir réttu upphæðina.....spurning um að bera þetta undir yfirmenn ykkar og koma verkefninu í framkvæmd...............

"hægara er að kenna heilræðin en halda þau!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!"

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim