Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

mánudagur, mars 29, 2004

Jæja þá er enn ein helgin liðin og þessi var alveg áfengis og skandala laus....... fór allt í einu að spá í skandölum!!!! í mínu tilfelli má eflaust segja að ég hafi upplifað þá nokkra en standardinn minn er greinilega orðin svo lár að ég upplifi ekki skandal eins illa og margir myndu eflaust gera!!!! margar samhangandi ástæður fyrir því t.d. má nefna negraruglið, dansing on þa sílíng og svo framveigis. Þegar ég fór að hugsa um það þá fór ég einmitt að spá í það að mér finnst að allar myndavélar og aðrir slíkir minningadjöflar eigi ekki heima nálægt fólki í drykkju og hvað þá mér. Ég nefnilega hef vit á því að forðast þær edrú en er gjörsamlega andstæðan í glasi, er fljót að vippa mér eins nálægt linsunni eins og ég mögulega kemst og glenni mig þar í öllu mínu sexýlegheita veldi....or not. því ég virðist enda eins og offitusjúklingur nýsloppin af kleppi alveg sama hvernig horft er á það .... kíkti einmitt inn á síðu hjá Hverfisbarnum, er oft þar og þótt að minni mitt reki ekki til þess að hafa einhver ´tíman pósað þar fyrir cameru þýðir það ekki að það hafi ekki gerst!!!! þar sem ég er ekki celeb, eða hangi mikið með the celeb krádinu þá hefur lukkan aldeilis verið með mér og ég fann engar myndir af mér í því skemmtilega ölvunarástandi sem ég virðist alltaf ná........ þetta er t.d afrakstur þess sem verður með camerur og mig í glasi



"orðið er KJÖT"............

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim