Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

mánudagur, mars 15, 2004

Helgin góða!!!!

vá frábær helgi!!! laugardagurinn byrjaði þannig að ég græjaði Helenu og Lottu fínar fyrir tjútterí hjá þeim. Síðan kom CC og sótti mig og fór með mig niður á Nordica spa!!!!! það er nú þannig með hana CC mína að þegar hún gerir eitthvað þá er það bara gert ALMENNILEGA, mín tók Inger sína þangað í þeim tilgangi að bjóða minni í Nudd og fínerí. Eftir að hafa farið í þrusu nuddmeðferð þar og í pottinum lá leiðin heim í Keilugrandann þar sem yfirhalninginn átti sér stað og þaðan fórum við til hinnar ómótstæðilegu Huldu Maríu. ÞAR VAR DRUKKIÐ. Þaðan fórum við svo á TGI og sulluðum í frábæru kokteilunum sem þar eru og fengum frábæran mat og FRÁBÆRA þjónustu. Anný vinkona hitti okkur þar og svo héldum við allar niður í bæ þar sem við áttum stuttu viðveru hjá Ástu vinkonu hennar Huldu. Þaðan var farið niður á Ölstofuna.....hef aldrei farið þangað en of lítill staður fyrir allt þetta fólk þannig að eftir stutt pissustopp þar var haldið á Celtic....... tekinn einn drykkur þar en það var ekkert gaman þar þannig að hinn sívinsæli Hverfisbar var fyrir valinu..... þar var tjúttað og ég og CC skemmtum okkur frábærlega vel í hallærissporunum með ljóskubrosið á vör!!!!! veit ekki hvort þið trúið þessu en ég dansði ekki upp á neinum borðum þetta kvöld!!!!! En ég og CC tókum reyndar aðeins á því í Sófanum á Hverfis og kenndum þessum nörrum að "shake som ass" svaka flottar að sjálfsögðu. Veit reyndar ekki alveg hversu flottar við vorum þegar ég tók mig til í einhverju "all so sexy" múvinu að skalla CC beint í smettið......en við reyndum að minnsta kosti að halda kúlinu. Níels kom svo og náði í drottningarna um 5 leytið en Anný "stakk" okkur þá af (veit ekki alveg út af hverju....Anný verður að svara fyrir það mál ;) )

Brilliant kvöld í Alla staði og þrátt fyrir ofurþynnku gærdagsins þá er ég bara spennt fyrir því að fara út næstu helgi með henni CC minni og öllum hinum SoS píunum..... CC... Æ Luv ja, vildi bara segja þér það!!!!!!!!!!!!!

Jæja mín lætur sér ekki nægja að verða famos á ölstofum landans því hún er nú farin að láta til sín taka hér og þar í þjóðfélaginu.... endilega kíkið hingað

Kveðja Inger

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim