Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

miðvikudagur, mars 31, 2004

Nenni ekki að vinna og því blogga ég!!!!! Það er ekki þar með sagt að það sé ekki nóg að gera í vinnunni!!! ég er bara að forgangsraða!!! Þegar ég les bloggið hjá öðrum þá finnst mér eins og fólk sé alltaf að flétta inn í póstin sín þjóðfélagsádeilur og annað slíkt. Ég náttúrulega veit alveg að þjóðfélagið er þarna af því að ég leyfi því að vera þarna..... strax og ég er orðin rík þá fer ég að grípa í taumana og gera eitthvað róttækt......... en verður maður ekki að hreinsa til í garðinum hjá sér áður en maður fer að setja út á garðinn hjá nágrannanum (vá djúp!!!! ) Jæja eins og flestir vita þá er sumarið langt frá því að vera minn uppáhalds árstími....... og út af hverju þá er megin ástæðan GOLF en það er svo sem ekki sjálf íþróttin sem er svo slæm heldur forgangsröðun æxlisins á þessu ágæta sporti. Heimurinn snýst um golf allt vorið, sumarið og haustið eða alveg þangað til það er farið að fá sektir fyrir eyðileggingu vallarins að vetri til. Golf sísonið er ekki einu sinni byrjað og strax er ég farin að geta pirrað mig á þessu.... ef til vill vegna þess að ég tel mig vita hverju ég á von á!!!! til að byrja með kemur að minnsta kosti fljótlega í maí umræða um nýjar golfkylfur (vill svo skemmtilega til að viðhengið á afmæli í mánuðinum og þetta er oftast það eina sem kemur til greina að gefa með góðu móti) veit ekki hvort golfskórnir séu nógu góðir núna en ég held það þangað til annað kemur í ljós, svo er eflaust hægt að finna einhverja góða þörf fyrir ný golfföt og slíkt. Ég er að reyna að klára allan pirringinn minn núna og er að reyna að berja mig áfram í þeirri hugsun að þetta skipti mig ekki máli .... það gengur hægt en kemur þó kannski. Það er bara spurning um að búast ekki við neinu af viðhenginu, ekki gera neinar kröfur og skipuleggja sumarfríið sitt með Lottu systir. Þetta er mín hlið á málinu, hin hliðin er allt allt öðruvísi. Þar má viðhengið þakka fyrir það að komast einu sinni til tvisvar í golf á ári með haugryðguðum prikum og ferköntuðum kúlum og engum tíum af því að viðhengið hans er svo kúgandi að hann getur ekki pissað standandi lengur!!!!!!!!!!!!!!!! En ég held að ég þurfi hjálp við pirringinn....finn alveg hvernig hann magnast upp í hvert skipti sem ég hugsa um þetta og það er að komast á þann punkt að ég má ekki heyra orðið golf án þess að finna hvernig heilinn kallar á prósak og leitar stöðugt að "happí pleisinu" til þess að reyna að halda kúlinu. Vill ekki vera svona....vill geta verið bara annaðhvort rosajolly með þetta eða bara "don´t give a fock" en það virðist ekki koma enn sem komið er. Hver segir svo að sambönd séu auðveld.... vonandi ENGINN því what a load of crap..... jæja nenni ekki þessum ofurpirring lengur....... breath in, breath out!!!!!! serenity now!!!!!!!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim