Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

miðvikudagur, mars 31, 2004

Jæja er ekki komin tími til að skrifa aðeins!!!! ég ætla bara að láta ykkur vita að um kvöldmatarleytið í kvöld (eða í seinasta lagi á laugardaginn) verð ég orðin vel rík og hræðilega happí...... Hvernig???? það er einfalt annað hvort vinn ég í Lottó eða Víkingalottó!!!!!!! það er ekki möguleiki á öðru. Mér er alveg sama hvað hver segir um ágæti peninga, vitleysu á borð við "peningar kaupa ekki hamingju" og "margur verður af aurum api" og öll sú þvæla. Ég get bara sagt ykkur það að ef ég væri rík þá væru þónokkrir hlutir sem myndu safnast saman í það að ég yrði myn skemmtilegri manneskja fyrir vikið heldur en sem hin almenni launþegi með yfirdráttaheimild í botni :). Tökum sem dæmi, ég myndi byggja sumarbústaðinn minn sem yrði nýttur sem skemmtiaðstaða fyrir hvern þann sem kýs að njóta hinna dásamlegu samvista minna. Ég myndi að sjálfsögðu hafa áfengið í massavís og stanslaust stuð og fínerí. Ég myndi hætta að vinna!!!!!!!! það er staðreynd, en ég myndi samt ennþá klippa ykkur vini mína og vandamenn svona af því að það er ágætt að halda því áfram (svona ef vinningurinn skyldi ekki duga nógu lengi). Ég myndi kaupa mér 7 manna bíl og ferðast út um allt með Lottu systir á sumrin því að mennirnir okkar væru í golfi. Ég er svo sannarlega Grasekkja á þeim árstíma. Ég myndi kaupa mér eyju og fara að safna saman drauma"kjötinu" mínu þangað, þar sem ég færi í "frí" á sumrin. Það ljúfa líf að vera ríkur, þarf endilega að verða svoleiðis. En hef engar áhyggjur, líf mitt sem launþegi í harlem fer að ljúka og nýr tími framundan!!!! Þar sem ég þarf ekkert sugardaddy eða sugarmama!!!!!!!!! I AM THE SUGARMAMA þetta gefur mér það frelsi að vera skemmtileg 24/7............................

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim