Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

miðvikudagur, janúar 07, 2004

Stal þessum lista.... Hin fullkomna megrun..... :) Ákvað aðeins að kommenta....

1.) Ef þú borðar eitthvað og enginn sér það, hefur það engar hitaeiningar. Sem þýðir að ég borða bara einu sinni á dag= 350 kal.

2.) Ef þú drekkur ,,diet" gos með súkkulaði, núllast kaloríurnar burt. Damn þarf að fara yfir í Diet sullið..........

3.) Ef þú ert að borða með öðrum, teljast eingöngu þær hitaeiningar sem þú borðar umfram hina. Vá ég sem borða alltaf með Níelsi sem þýðir að enginn hætta er á því að ég fái einhverjar hitaeiningar yfir daginn...Íhaaaaa

4.) Matur sem er góður fyrir heilsuna telst ekki með s.s. ristað brauð með kakó, rauðvín og ostakökur (allt þetta er notað til lækninga (á lystarleysi). Vissi það........

5.) Ef þú umgengst feitt fólk virðist þú grannur, spurning er hvort þú sért ekki bara í röngum félagsskap ef þú ,,ert" feit/ur. Spurning um að dömpa þessum anó gellum í kringum mig og hook up with Gauja and co.

6.) Það sem þú borðar í bíó eða þegar þú horfir a sjónvarp eða video telst hluti af skemmtanapakkanum og telst því ekki með ss. popp og kók og súkkulaði. NÁKVÆMLEGA....

7.) Ef þú borðar kökur eða kex, skaltu brjóta eða skera þær, þá leka hitaeiningarnar út. Líka nóg að tyggja hratt og anda frá sér því þá leka þær úr.....

8.) Það sem þú sleikir af eldhúsáhöldum og óhreinum diskum telst ekki með því það er hluti af matarundirbúningnum. Sleik, sleik.....og svo spýta!!!!

9.) Hitaeiningar eru í lit matarins, borðaðu grænt. Það er ekki þér að kenna að marsipan er oft litað grænt og ath. brúnt er blandaður litur, ekki náttúrulitur svo allt brúnt telst ekki með ss. súkkulaði, nema það sé hvítt. Með master í litunum...massa það!!!

10.) Matur sem er frosinn inniheldur ekki kaloríur því kaloría er hitaeining. READ MY LIPS... HITAeining.....


jebb jebb......

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim