Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

þriðjudagur, janúar 06, 2004

Bak,bak,bak og aftur bak.....fór næstum því að grenja í gær!!!! er að einbeita mér svo svakalega að því að vera ekki leiðinleg út af stanslausum bakverkjum (sem eru þó búnir að vera mjög góðir í smá tíma en versnuðu svo í gær aftur mjög mikið) og það leiðir af sér að ég segi ekki neitt sem veldur íbúum dalselsins frekar miklum áhyggjum....enda ekki beint vanir því...

Talandi um hommatitti sem hanna og móta tísku út í hinum stóra heimi þá lá ég í gær og horfði á þátt sem heitir Americas next top model....svona survivor of the Models þáttur...frekar sorglegt sjónvarpsefni... Ein gellan þarna virðist nú hafa eitthvað á milli eyrnanna en hún er eins og 10 ára gamall karlmaður frekar en fullmótuð kona... og það versta er að flestum þarna finnst hún geðveikt flott.... alveg sorglegt að horfa upp á sjónvarpsefni þar sem einhver anógella rúlar feitt.... svo er ein þarna sem er með stórar mjaðmir og læri en enga síður mjög flott og hún er alltaf kölluð plussize....+size my ass... konan er kannski 40 og þá er hún bara orðin eitthvað stigma fyrir "stórt" fólk....for kræst sake...hvert er heimurinn að fara... módelinn og skutlurnar eiga að vera "skeletons" og meðalmanneskja blæs út eins og Kani á donkin donuts.

ef gella sem er 38-40 er + size þá er ég offitusjúklingur...... og hana nú

Önnur pæling!!!! nú hafa flestir ef ekki allir .... einhvern tíman logið einhverju að einhverjum hvort sem að það er hvít lygi eða kolsvört!!! merkilegt hvað sannleikurinn er einfaldur en lygarnar erfiðar!!! ég lærði það ef til vill seint en ekki of seint að mér finnst hversu tilgangslaust og mannskemmandi slíkur bransi er og hef síðan þá reynt að halda mig einungis við sannleikan (þó að ég ef til vill kunni ekki alveg á mörkin þar sem oft má satt kyrrt liggja, þá fæ ég að minnsta kosti 10 fyrir viðleitni).... ein slík saga var þegar Inger "hin vitra" var að deita dópista og hætti í skólanum í kjölfar verkfallsins án þess að segja fjölskyldunni frá því. Hætti fyrir próf en til þess að fela fyrstu lygina varð önnur að fylgja= mæta í próf, svo kom 3 lygin= fá einkunnir... ef til vill sem betur fer fórst mér ekkert sérstaklega vel úr hendi að stunda þennan bransa því eins og auga gefur leið þá sprakk þetta að sjálfsögðu í andlitið á mér....bjóst ég við því að mútta yrði alveg brjáluð af reiði en viðbrögðin voru mikið verri!!!!!! Hún var svo sár að hún gat ekki einu sinni skammað mig, og mér leið svo hrikalega illa að það var ekki fyndið en þó sjálfskapað..........

Lexía dagsins= ekki ljúga........................ ahahahaha bara sjúga :)

uh baby,baby,oh,baby baby!!!!!
Eins og flestir vita þá er áfengi í mínum höndum eins og fryggðarlyf í höndum annara og kvennlegheitin og sexapealið lekur af mér eins og sviti í spinning!!! en langt er síðan Ofurskutlan datt í það ærlega og leyfði heiminum að njóta sín í fullu veldi þótt að maður hafi tekið nettan "öryggisvörð" upp á sviði með millunum á annan í jólum. Þannig að eftir 2-3 vikur bíð ég mig fram sem Stuðbolta á þrusufyllerí........ og nú spyrja margir....af hverju eftir svona langan tíma......og svarið er mikið að gera fram á því og er að einbeita mér að markaðssetningu "THE BODY" (sjáið hérna fyrir neðan) og vinnunni bak við nýtt bak tek ennþá við tilboðum.....

Dagskráin...... Drekka, dansa, drekka, sexy, drekka, borða, sexy, fyndið, skemmtileg, drepast, sofa, skemmtileg en þunn, borða þynnkumat= mjög skemmtileg og svo bara svona óvissa má henda inn þarna einni matskeið af karókí, 3 döshum af leigarbröndurum svo ekki sé minnst á 2 tsk. dyravarðagríni.......

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim