Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

fimmtudagur, desember 25, 2003

Jæja skvísur! held að ég sé að blogga á elstu vél norðan Alpa(hún er fótstiginn!!!! tók mig tíu mínútur að opna síðuna...svo að ég fæ pottþér + stig fyrir það)
Vildi bara þakka öllum fyrir mig og tilkynna jólagjafalistann minn
1.fékk gylt nærföt í jólagjöf.
2.fékk pils og bol frá Níelsi ( verður að taka fram að hann hefur aldrei gefið mér föt en tókst einstaklega vel til hérna...verð reyndar að skipta pilsinu í aðeins stærra...en þó merkilega close)
3.jólaskeið 2003 (tilkynnist hér með að ég er að safna þeim...gömlum og nýjum)
4.Kanna
5. Fótafarið hans Viktors.
6. Flíspeysa
7. rúmföt
8. Bolur frá Anný....geðveikt kúl + stig fyrir það
9. Mackintosh frá Pabba, mjög ánægð með það því í fyrra fékk ég ekki neitt og það fílaði ég ekki þannig að núna var ég mjög glöð, því að það er ekki gjöfin heldur hugurinn við það að gefa.
held að ég sé ekki að gleyma neinu og vill þakka öllum fyrir mig og sé í lagi öll fínu jólakortin sem ég fékk, og biðst afsökunar ef einhver fékk ekki jólakort frá mér...ekki viljandi gert, meira svona jólagleymska :) (eða bara almenn gleymska)

Annars er það að frétta að ég hef ekki náð að þyngjast ennþá (er þó að vinna í því í jólaátinu :)... en er núna 81kg sem eru 8 kílóum léttari enn ég var þegar ég byrjaði í skvassi fyrir 4 mánuðum.....kúdós for mí..... :)

makmiðið var að komast niður í sjötíu og eitthvað fyrir áramót en þetta er A.ok... massa það bara fyrir sumarið...þá ætla ég að vera komin niður í 72 kíló...... læt ykkur vita hvernig það gengur allt saman....

jæja nóg í bili....jólaknús að hætti stubbana og sí jú leitor..... I goddess

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim