Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

mánudagur, janúar 05, 2004

Jæja er ekki komin tími til að blóta aðeins þessum helvítis LÍN gúrkum...... tók námslán OK, þarf að borga það OK...en komm on þarf ég að borga ein mánaðalaun á ári ekki samanlagt heldur ein mánaðlaun hjá mér og ein hjá Níelsi....Fokk that...

Maður er ekki búin að borga eitt þegar helvítis ríkið mætir að hirða af manni rest..... ég meina mér finnst að ríkið eigi að taka þessa upphæð af launum fyrir skatt en ekki hafa af manni skattinn og svo þarf maður að borga þeim til baka tugi ef ekki hundruði þúsunda á ári hverju. Og ekki nóg með það, lækka á vaxtabætur og barnabætur þannig að why bother...

Helvítis andskotans djöfulsins LÍN.... óska eftir leigumorðingjum eða heilbrigðum félagsmálaráðherra til að kippa þessu í liðin.... vill hér með að þessu verði breytt en vitið þið til....þetta breytist daginn eftir að ég klára að borga lánið mitt... ég hef reiknað út að ég verði 7-10 ár að borga upp námslánin miða við launakjör dagsins.... spurning um að fara að safna fyrir LÍN....

Hogga systir hennar múttu tók námslán fyrir 24 árum (Þá voru námslok) og var að fá niðurfellingu á láninu núna út af gömlum reglum og fékk niðurfellingu á einhverri 1 1/2 milljón..... ekki fæ ég neitt svoleiðis og vill það ekkert endilega en þessu greiðslubyrgði eru út í hött....eins gott að ég er ekki single....færi á hausinn 1-2-3...

PIRRUÐ, PIRRUÐ 2004

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim