Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

þriðjudagur, júní 19, 2007

Sky high!!!!!

segi ekki meira en að ég sé í góðu skapi í dag, byrjaði daginn í rjómablíðu með Helenu sys og Mæju (lánshundinum hennar) í göngutúr um okkar ástsæla Seljahverfi....fín strolla það :) sit svo hérna í vinnunni í svona perluðu skapi og átta mig allt í einu á því að ég finn ekkert til í bakinu (gæti verið það) er eins og ljóska í búningsherbergi vel metins íþróttafélag með brosið eyrnanna á milli (segi ekki meir) fuck hvað lífið er yndislegt eitthvað. Annars er það að frétta að ég er að taka mig á í hreyfingarmálum, sé mig tilneydda að amk ganga rösklega hingað og þangað ætli ég mér að komast á skytterí í haust án þess að detta niður dauð við hliðina á bílnum.

en nóg um það, langar rosalega að taka létta pælingu með ykkur hérna kæru netvinir...hafið þið spáð í virkni hinna ýmsu hluta í okkar daglega lífi og aksjúlí vitið eða skiljið hvernig þeir virka???? ég t.d. hef spáð í það en fyrir mitt litla líf skil ég ekki hvernig þetta virkar

eins og bara sími........hvernig get ég sagt eitthvað á Íslandi og það heyrist í tóli á öðru landi???
geisladiskar.......hvernig í fjandanum er hægt að setja gögn á disk og hverjum datt þetta í hug??
tölvupóstur.........veit að öll gögn fara um netið sem binary texti en hvernig í helvítinu birtist hann hjá mér eðlilegur?
og margir svona eðlilegir hlutir sem virka án þess að ég skilji hvernig þeir virka?????????

já lífið er flókið í lífi þeirra einföldu.......en sælir eru hins vegar þeir einföldu ;)

hell ye Life is fucking beautiful

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim