Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

mánudagur, desember 01, 2003

Hugleiðingar um WC ferðir
Við teflum öll við páfann, konur líka, en athöfnin sjálf virðist í hugum
flestra vera mikið feimnismál. Það er nú svo sem skiljanlegt enda ástæða
fyrir því að við lokum að okkur þegar taðfæðing er í gangi. Það hefur oft
borið á góma að konur kúki ekki en það er ekki rétt - þær kúka líka. Þær
eru í flestum tilvikum ekki eins grófir kúkarar og karlar? Sumar hverjar
kúka slaufukúkum og aðrar fjölmörgum agnarsmáum spörðum = dvergakast.
Sumar eru samt groddaralegir hellisbúar og þær stífla klósett og mölva setu með
þrusulort.

En af hverju er ég að velta mér upp úr þessu? Það er jú vegna þess að mér
finnst allt of margir líta á skitu sem einhverja kvöð. Það vill oft
gleymast að klósettferð með gat nr. 2 í huga er eitthvað sem krefst
mikillar tækni og getur orðið hin mesta náðar-unaðar-stund. Þetta er viss
griðarstaður þar sem þú ert ein(n) með ristlinum og samvinna ykkar beggja
kallar á sameiginlegan skilning. Ristill vill losa úrgang og þú vilt njóta
hægðanna. Það er ástæða fyrir því að karlmenn njóta þeirra betur en hún er
G-blettur.


1. FORLEIKUR:
Að kúka er eins og að stunda kynlíf. Þeir sem gleyma forleik eru slakir
bólfélagar. Þeir sem gleyma að leika sér að kúknum til að forma
ákjósanlega lögun í ristli eru slakir kúkarar. Þetta vita fáir. Fyrsta
stig skitu er þegar ristill gerir vart við sig. Þá vilja margir hlaupa til
handa og fóta og afgreiða málið strax. Það er rangt. Þú átt að halda
honum í þér sem gerir það að verkum að hann þjappast. Eftir 1-2 tíma byrjar hann
aftur og þá leikur þú sama leik - kúkahald - og leikur þér líka aðeins að
honum [rennir honum upp og niður í ristli]. Eftir 30 mín. herjar stykkið
aftur á þig og þá lætur þú undan. Með þessari aðferð myndast þéttur og
solid dropalaga þrususkítur sem glymur í skál og yfirgnæfir kirkjuklukkur.


2. KLÓSETTFERÐIN:
Ef rétt er staðið að málunum [sbr. 1. grein] skal fyrir kurteisissakir tjá
fólki um fyriráætlanir sínar, þ.e. ef einhver þarf að losa úr gati nr. 1
skal honum/henni hleypt fram fyrir röðina. Er inn á WC er komið skal
tryggja að klósettpappírsforði sé ekki að skornum skammti. Næsta mál er að
athuga hvernig lögun klósettsins er. Þetta er spurning um hvernig skuli
sitja svo unnt sé að hitta beint í mark, þ.e. vatnið [súrt að vera með
skakkt rassgat]. Það leiðinlegasta er að þurfa að hreinsa eftir sig með
klósettbursta. Eftir það fer í hönd ferli pjattpullunnar. Þá er
klósettpappír komið fyrir í botni skálarinnar til að koma í veg fyrir gusu
í taðgat. Ekki þykir gott að fá kalt vatn eða eigið þvag í hringvöðva.
Aðgerð þessi kallast að koma fyrir lendingarpalli. Næst tyllir þú þér á
setuna. Ef þú ert á pupul-klósetti þá mæli ég með því að hylja setu með
pappír. Þá færðu ekki kám á rass og finnur ekki fyrir kulda setunnar.

Nú kemur að aðalmálinu. Best er að láta þvag renna fyrst og ná svo skitu
út meðan þvag rennur. Ekki þrýsta of fast því mundu: Skíturinn hefur verið í
þjappingi í ristli í 2-4 klst. Ef maður reynir þrykkju þá kemur sársauki í
tað þegar hann þrykkist út. Ekki gott. Best er að áætla helming út og
klippa þar á hann. Ef þú klikkar á því að klippa hann þá geturðu lent í
því að þurfa að pota í hann með priki svo hann nái beygjunni. Meiri unaður
fæst út úr því að klippa - þá er eins og um 2 losanir hafi verið að ræða.


2.1 SÍMI Á SETTI - VINUR DEILIR GLEÐI:
Ekki er óalgengt að súper-taðlosarar takið með sér farsíma á sett til að
deila gleðinni með fjarverandi félaga. Þá er sniðugt láta símann síga
niður í skálina svo viðkomandi heyri þegar manninn dettur, þ.e. splashið. Þá
mæli ég ekki með þvaglosun og alls ekki setja pappír í botn skálar.


3. SKEINING OG FRÁGANGUR:
Eftir tæmingu ristils mæli ég með góðri skeiningu. Þá vil ég benda þeim á
sem kuðla pappírinn og búa til kúlu að hætta því. Það er ógeðslegt og mun
meiri hætta að fá á sig tað. Yfirstéttarbrotið virkar best [sex
smáblöðungur brotinn saman 2x]. Það er yfirleitt nóg að búa til 2 brot af
honum. Sniðugt er að gera þetta fyrir taðlosun því illu er best aflokið.
Eftir skeining skal sturta niður. Leyfið lort og meðfylgjandi pappír að
fara niður áður að setuhyljan er látin gossa. Ekki gleyma að skola hendur.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim