Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

fimmtudagur, nóvember 13, 2003

Jæja litlu dúllurnar mínar alltaf hef ég nóg að segja og ég læt ekki deigan síga (eins og sumir sem ég þekki hérna á blogginu…nefni enginn nöfn en þær búa í flúðaselinu)

Pæling dagsins spratt upp af ef til vill einkennilegu atviki…þannig var að ég sá auglýsingu um Philipo Berio ólívuolíu… Og núna hugsa margir… AHA????Ég kann margar sögur af þessari líka ágætisolíu en þær verða víst ekki sagðar hér og nú… þannig var að ég sá konu (sem vill svo skemmtilega til að er kvennsjúkdómalæknir) auglýsa þessa ágætis vöru og ég fór að hugsa… "eitthvað finnst mér hálffyndið að kvennsjúkdómalæknir sé að auglýsa olívuolíu!!!!! " en upp poppaði þá minningar mínar um þessar líka "skemmtilegu" ferðir til þessara ágætu lækna…

REMEMBER THE FEEt MY DEAR!!!!!
Þegar ég var ung og fögur snót c.a. 16 ára ákvað ég að byrja á pillunni og þar sem að heimilislæknirinn minn var svo massívur, var hann eða öllu heldur hún fyrir valinu á þessu líka "viðkvæma" erindi. Bjóst nú ekki við mikilli framkvæmd við þessa beiðni mína en OBOBOB… Hún tilkynnti mér strax að hún hefði það prinsipp að skrifa aldrei út getnaðarvarnapillulyfseðil til ungra kvenna án þess að taka TÉKK Því að (og nú kemur fróðleiksmoli dagsins!!!) 3 eða 4 hver kona er með klamedíu án þess að vita af því!!!! Og svona til fróðleiks (svona af því að ég er að ausa úr viskubrunninum mínum af einskærri "orðasnild" eins og svo oft áður, þá geta konur smitast af klamedíu af ólíklegustu hlutum, ef kona hefur verið með klamedíu í "langan" tíma og ef til vill verið einkennalaus hefur "bakterían" komist í alla slímhúð og líkur á að kona geti smitað aðra konu í gegnum svo saklausan hlut eins og maskara…svo að u "sluts out there" þið fáið ekki maskarann minn lánaðan ……ANYWAY…
Þessi elskulegi læknir minn teymir mig inn í eitthvað herbergi þar sem þessi líka forláta græja tekur á móti mér … og hvað er ég að tala um að sjálfsögðu "STÓLINN" …og nei ég er ekki að meina rafmagnsstólinn (þótt að hann gæti eflaust verið meira spennandi at times) Það er þessi viðbjóðslega græja sem allar konur hata… stólferlíki með einhverju apparati sem fætur manns étur og glennir mann í sundur eins og kalkún á "Thanksgiving"
Á þennan stól stari ég og hugsaði bara lítið sem ekki neitt…(I went to my HAPPY PLACE) … Hef nú ekki þótt pempía mikil og vippaði mér úr klæðunum að neðan og nánast hlamma mér í stólinn… Fyrst koma einhverja útskýringar um það hvernig maður situr "rétt" í helvítinu og hér með skal ég útlista því
1. Rassinn verður að vera neðarlega á "sessunni" nánast að hanga fram af
2. Fæturnir slakir og stöðugir í "ístöðunum"
3. Umfram allt skal slaka á öllum vöðvum í rassi,fótum, maga og grind
og komm on!!! Maður er ekkert að “chillin with the homeboys” í þessu ferlíki!!!!
En upp var komið og best að ljúka þessu af. Læknirninn mætir með "búmarangið" eins og ég kalla það og byrjar að "kafa" Í því augnabliki dett ég aðeins úr "my happy place" og mér verður litið til fótana…
ÞÚ HLÝTUR AÐ VERA AÐ DJÓKA Í MÉR…… haldið þið ekki að ég hafi "gleymt" eða hreinlega ekki fattað (grunar hið síðarnefnda) að ég var ennþá í helvítis sokkunum…Nógu vandræðalegt hefði verið að vera í einhverjum "kneströmper" (sem þó höfðu ekki náð innreið í tískuval mitt) en nei ég gat að sjálfsögðu toppað það…ég var ekki einugnis í einu pari af einhverjum forljótum sokkum heldur tveimur…og það sem verra var að þessir tilteknu sokkar voru eitt par af grænum fótboltasokkum með hvítri rönd (go Breiðablik ) og þá var utanyfirparið einir þeir ljótustu ullasokkar sem ég hef séð og ekki nóg með það, þeir voru helgötóttir…og til að toppa allt þá (miða við aldur og fyrri störf ) er ég pottþétt á því að þarna hafa verið “stinky toes” á ferðinni…………… Lexía dagsins: ALLTAF FARA ÚR SOKKUNUM ÁÐUR EN ÞÚ FERÐ Í "STÓLINN" !!!!!!


Við skrifin á þessari sögu rifjast upp áframhaldið af þessari… ég meina það þegar ég hugsa um það þá hefur líf mitt verið ein "hrakkfallasagan"á fætur annari…

LUBRICANT ISNT ALWAYS HELPING!!!!!!

Lotta hafði verið þess heiður aðnjótandi að ganga í gengum þessa upplífun á undan mér og hafði frætt mig um það, að best væri að "fjarlæga" kremið sem læknirinn notar fyrir "búmerangið" STRAX…því einhverrahluta vegna klæjar manni þvílíkt undan því……

Þegar úr stólnum er stigið rétti læknirinn mér pappír "í þeim tilgangi" að ég ætti að fjarlæga þetta forláta krem… Eins og ég hefði ekki gert mig að nógu miklu fífli þá hvarlaði það ekki að mér að standa þarna og SKEINA mér fyrir framan konugreyið… oh nei!!!!!! Ég bara vippaði mér í buxurnar og fékk minn lyfseðil og hélt heim á leið… Læknirinn er staddur í mjódd svo það var ekki langur gangur í Grýtubakkann… En langt komst ég ekki… Ég var rétt komin yfir götuna þegar OFSAKLÁÐINN var mættur……og hvað gat ég gert…ég hugsaði…DAMN…HVAÐ ÉG ÞARF AÐ KLÓRA MÉR!!! Ég horfði í kringum mig og vippaði mér inn í einhvert runnaskrípi við göngustíginn … og hann var nú ekki beint að "fela" mig… náði mér rétt fyrir ofan mitti (en hann faldi það sem hann átti að gera) þar stóð ég eins og versti perri að klóra mér í klofinu og ég hefði eflaust geta staðið þar allan daginn að klóra mér en áttaði mig nú á þvi að það gengi nú ekki upp, heim yrði ég að komast… Og það fljótt. Íhugaði að nota laufblað og vippa mér á ef til vill aðeins afskertari stað (t.d. bak við ljósstaur eða eitthvað) en gerði það sem betur fer ekki!!! ef til vill smá heilastarfsemi í gangi!!!
Jæja ég ákvað bara að taka á rás… Og eins og flestir vita hleyp ég ekki nema ég sé elt!!! en boy, oh boy…þið hefðuð átt að sjá mig þarna, hljóp hraðar en Ben Johnson á sterum!!! Ég hljóp eins og gyðingur með nasista á hælum mér, Speedy Gonzales hefði skammast sín…og loks var komið heim!!! Hurðin var rifin upp og þar stendur Lotta, sem varð fórnalamb aðstæðna minna og var grýtt niður með töskunni minni og í beinu framhaldi rokið inn á kamarinn þar sem ekki var skeytt um neitt!!!! kremið varð að fara og það var fjarlægt hið fyrsta og ekki einu sinni leitt hugann að því að útidyrahurðin og baðherbergishurðin voru opnar og allir sem á ganginum voru hefðu getað átt ansi greiðan aðgang að þessari aðgerð minni!!!! sem betur fer kom enginn (ekki það að tippikal fyrir mig hefði það verið ef einhvert gamalmennið í stigaganginum hefði orðið vitni að þessu) eftir stanslausar "skeinanir" í nokkrar sekúndur (sem ótrúlegt en satt skildu ekki eftir sig varanleg ummerki verknaðarins) var kláðinn á brott…Og sit ég ennþá á dollunni með fas og svip á mér eins og mér hafi rétt sloppið undan hungruðu ljóni… Þarna var Lotta staðin á fætur og búin að loka hurðinni fram á gang (þótt fyrr hefði verið) og horfði svo á mig (og vissi alveg hvar ég hafði verið) og sagði Gleymdir þú að skeina kremið burt? og ennþá sé ég aulaglottið framan í henni þegar hún sagði "ég sagði þér það!!!!! "

Jæja nóg í bili

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim