Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

mánudagur, nóvember 03, 2003

Jæja...monday,monday...eins og einhver skinkan söng hérna um árið....er búin að tala við mína menn um að setja málið með "Jú mánudagur er líka helgi" fyrir nefnd og verður fjallað um málið bráðlega.....Undirskriftalistar ganga á meðal fólks fljótlega eftir það!!!! EKKI GLEYMA AÐ SKRÁ YKKUR Á HANN

Líkamsræktarbúlemían er að tröllríða systrunum og verðum veikari og veikari með hverri vikunni sem líður.....Memo to me! muna að biðja Gullu um að fyrirgefa okkur fyrir stanslaust grín sem kom ekki aftur í andlitið á okkur...það hljóp þangað!!!!!!

mætti í vinnuna í dag í Joggaranum eina ferðina enn út af því að ég ætla að gera enn eina tilraunina með að telja lagerinn. Var búin að vera hérna í nokkra klukkutíma þegar ég stend og er að spjalla við einn góðan mann hérna inni og sting höndum í vasana!!!! málið var að vasarnir snéru eitthvað öfugt...var að reyna að halda uppi samræðum en það eina sem ég hugsaði um var "vona að manngreyið taki ekki eftir því að ég er í öfugum buxunum....." vá þvílík gúrka....þegar manngreyið fór var hlaupið inn á bað og snúið við buxunum :)..ég meina það...

Er búin að vera þvílíkt næs í bakinu...mæti svo í vinnuna og BAMM... bakið í hönk.... veit ekki hvað er að valda þessu...veit ekki hvort þetta er stóllinn eða röng staða eða what....nenni þessu ekki meira :(

Jæja þeir sem vilja jóla,jólafýling...verið velkomnir að mæta í dalselið, ákvað að bregða út af venju og setja jólaskrautið upp næstu helgi!!! jólafýlingurinn er reyndar komin á fullt skrið...er að fara að baka og jólalögin glymja við hvert tækifæri (TÆKIFÆRI= NÍELS EKKI HEIMA)... mín stefna í þessum málum er að um að gera að lengja þessa jólahátíð...2 mánuðir eru ekkert og mikið (ég meina 13 dagar hvað er það ofan á brauð.....)....

Vantar svo rosalega græjur hérna í vinnuna til að hafa jóla, jóla fýling þar líka...er að spá í að mæta með "geto blasterinn" minn hérna.... eða bara hátalara við tölvuna...held að það sé hljóðkort...ætti kannski að kanna það fyrst....

Jæja núna er ég bara farin að rambla.....verðum í bandi Skinkurnar mínar...knús og kossar mæ snúlls.....Inger ofurljókuskutla

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim