Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

föstudagur, október 31, 2003

Klæðnaður dagsins (innan sem utan)
1 stk álfabikar
1 stk rifnar topshop nærur (hvað er með það...annaðhvort er ég svona feit eða þær svona lélegar)
1 stk uppáhlalds boppuhald SUPER SOFT baby :)
1 stk blárar síðar undirbrækur SÍÐAR ( I am talking DEAD SEXY )
1 stk síðerma bómullar bolur
1 stk síðerma ullarbolur (enn og aftur Dead sexy)
1 stk þykk flíspeysa
1 stk trefill
1 stk þykk úlpa (svona eins og millet)
1 stk húfa
1 stk blár vettlingur (fingra)
1 stk grár vettlingur (lúffa)
2 stk grænir sokkar
2 stk grænir kuldaskór
og síðast en ekki síst 1 stk grár joggingbuxur utan yfir sexy sokkabuxurnar eða meira gámmósíurnar

Ímyndið ykkur þetta og reynið svo að sjá mig fyrir ykkur inn á skrifstofu í herlighiden að pikka á tölvu og selja einhverjum gúrkum sem koma hérna ........skil ekki af hverju fólk er að kaupa af mér í dag :)

Jæja þá er helgin komin ...var að fá launaseðilinn og demn hvað það er langt síðan ég borgaði svona háa skatta (fæ bara bónusstig á kerfissvindlið mitt fyrir þetta :)
Finnst óþarfi að vera að borga rúv næstu árin bara fyrir þennan pening og hvað þá eitthvað annað.......finnst ég bara eigi að vera "kvitt" við ríkið í smá tíma ....spurning um að setja málið í nefnd.

Og hvað á að gera.....Idol í kvöld..mission með það er að halda sér vakandi núna....ÉG GET ÞAÐ sálfræðin núna. Svo þyrfti ég að vinna en ég er ekki að sjá að ég nái því en hvernig sem það fer þá bara so be it.... jæja nenni ekki að blogga meira núna...skrifa eflaust meira á eftir .....er í svoleiðis skapi (ef einhver væri hjá mér núna myndi ég kjafta hann í kaf...annað en venjulega......) jæja að lokum MEMO TO ME= Sannfæra alla um að það er alveg í lagi að spila jólalög frá svona c.a. ágúst,sept vel fram í mars.....

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim