Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

mánudagur, júlí 12, 2004

Hæ dúllu snúllurnar mína!!!! jæja fór í brúðkaup aldarinna á laugardaginn, þvílík veisla og þvílík gleði. Maturinn frábær og vínir ennþá betra :).....enda drakk mín óheyrilegt magn af víni kennt við hvítt. Ekkert nema gott um það að segja en þar sem ég kann ekki að drekka léttvín fór ég aðeins(bara aðeins) yfir strikið og kúlið ákvað að fara heim á undan mér. En ég hafði víst vit fyrir samferðamönnum mínum eftir að hafa öskrað í gústafsbergið aðeins og kom upp orðinu heim,heim,heim nokkrum sinnum og heim var farið...... skildi eftir smá óvæntan glaðning fyrir utan danska sendiráðið í leiðinni!!!!!!!!!!!! en þrátt fyrir smá tap á kúlinu var ég "dead sexy" nánast allan tíman, tók meira segja lagið og fékk framfaraverðlaun að mati samferðamanna minna...... besta móment kvöldsins var þó þegar helena systir var að tala við ömmu hennar Margrétar Systur en það var þannig að Níels grípur eitthvað fram í og þá spyr amma "hver er þetta?" og helena segir "þetta er Níels maðurinn hennar Inger!" og hún snýr sér þá að Níels og segir "Ert þú nýjasti maðurinn hennar Inger???? " hélt að við myndum pissa á okkur við hlógum svo mikið.........eins og Inger sé bara alltaf mætt með nýjan og nýjan mann á kantinum.......

Þakka Margréti og Ella enn og aftur fyrir BRILLIANT veislu.......... endilega gera svona aftur...luv Inger

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim