Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

fimmtudagur, janúar 29, 2004

Jæja sagðist ætla að skrifa eitthvað menningarlegt í hádeginu...komst ekki það en here goes...

Var horfa á Extreem makeover í gær og síðan þá hefur maður svosem aðeins verið að pæla hvað maður myndi vilja láta gera við sig ef út í það væri farið..... ég er að sjálfsögðu alltaf jafn ánægð með sjálfan mig EN.... núna er maður að HORAST niður hægt og rólega og það versta við það er að "eldurinn" frægi á maganum nýtur sín ekki beint í skinnfellingunum... málið er að ekkert er hægt að gera við þetta helvítis skinn því að það er allt ónýtt..... ég er reyndar búin að ákveða að þegar ég er búin að trukka svolítið á LB-inu og komin niður í 70-75 þá ætla ég í trimform og reyna að slétta svolítið á þessu...ég sver það, þetta fór ekki svona mikið í taugarnar á mér þegar ég var með alvöru homer!!!!! svo þegar maður hugsar um það, þá leiðir hugurinn óneitanlega aðeins ofar,en ekki langt því fljótlega tekur við geirvartan sem nær auðveldlega niður fyrir nafla (a.m.k. í sitjandi stöðu....nú minni ég á að ég er með spegill fyrir framan klósettið og þarf að horfa á þetta ansi oft...) Elskulegu ástarhnapparnir mínir, eins fallegir og þeir eru, voru nú ekki alveg skapaðir svona...ja hvernig skal orða þetta, semitrískir!!!! eins og hefur víst áður komið fram, annar stærri en hinn og annar meira hangandi en hinn! en þó geta þeir báðir státað sig af því að hafa nipplið jafn neðarlega!!!!! þannig ætti maður að láta hífa þau líka, já væri alveg til það skal ég segja ykkur!!!! Einn lýtalæknir (sem ég klippti einhvern tíman) sagði mér það að vandinn við það er að oft missir maður einhverja tilfinningu í brjóstunum!!! ég bara spyr "hvað er að því????" þar sem mín eru á ofurdrifi með tilfinninganæmi þá er bara að segja mér hvar maður skráir sig í þetta. Og endilega tek ég við frjálsum fjárframlögum til að styrkja framtakið ........ Spáið í það....þá þyrfti ég að finna nýjan vinkil...gæti ekki leikið mér með eldinn og gert grín að Picaso verki guðs á barmi mínum... ég gæti nú eflaust fundið eitthvað til að ganntast með...ég meina upphívelsis blondínan úr breiðholtinu sem ekki hefur svuntu sem logar!!!!!!!!!! held það nú...

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim