Goldielocks and the gang......

You love me!!!!! je, je everybody loves me!!!!!

miðvikudagur, janúar 28, 2004

Jæja skvísur..verum djúpar...nokkrir hlutir svona

Ég er þakklát fyrir að hafa ryk á gólfinu og gluggakistunum því það þýðir að ég eigi heimili. (óska samt eftir skúru)
Ég er þakklát fyrir að vera dauðþreytt á kvöldin því það þýðir að ég hafi heilsu til að takast á við erfiði. (say it again!!!)
Ég er þakklát fyrir að finna ekki stæði alveg við búðina því það þýðir að ég hafi fætur sem geta flutt mig á milli staða.
Ég er þakklát fyrir að fara á blæðingar því það þýðir að ég geti ennþá átt börn. (álfabikarinn!!!)
Ég er þakklát fyrir það að börnin mín reyna á þolinmæði mína því það þýðir að þau er að móta sinn eiginn persónuleika. (jájá)
Ég er þakklát fyrir það eiga óhreinan þvott því það þýðir að ég eigi föt til skiptana. (sleppur svo lengi sem ég á þvottavél)
Ég er þakklát fyrir það að eiga of lítil föt því það þýðir að ég eigi nóg að borða.(right...)
Ég er þakklát fyrir ruslpóst í tölvunni minni því það þýðir að ég eigi vini sem hugs um mig.(ekki senda mér crap samt)
Ég er þakklát fyrir slit og hangandi brjóst því það er merki um barneigini mínar. (kannski ef ég segi þetta nógu oft..KANNSKI)
Ég er þakklát fyrir það að upplifa vesenið sem fylgir getnaðarvörnum því það þýðir að ég stundi kynlíf.
Ég er þakklát fyrir svo andskoti margt......... því það þýðir að ég er á lífi........ (úhaaaaaa)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim